Yfirlýsing Stúdentaráðs Háskóla Íslands vegna nýrra úrræða stjórnvalda vegna COVID-19

Í dag tilkynntu stjórnvöld ný úrræði vegna COVID-19 sem ná m.a. til geðheilbriðismála, grunnframfærslu framfærslulána, sumarlána og frítekjumarksins hjá Menntasjóði námsmanna. Stúdentaráð Háskóla Íslands fagnar auknu fjármagni eyrnamerkt geðheilbrigðismálum en lýsir yfir verulegum vonbrigðum með tímabundna hækkun grunnframfærslunnar. Stúdentaráð hefur ítrekað bent á að aðgerðirnar sem boðaðar eru fyrir stúdenta hafi raunar einungis verið miðaðar að ákveðnum stúdentahópum og verið til skemmri tíma. Enn og aftur eru kjör stúdenta látin sitja á hakanum og engar langtímalausnir til frambúðar sjáanlegar, sem lýsir skilningsleysi á stöðu stúdenta og skort á pólitískum vilja. Eiga stúdentar ekki betra skilið?

Menntasjóður námsmanna

Stúdentar hafa kallað eftir að lágmarki 17% hækkun á grunnframfærslu framfærslulána hjá Menntasjóði námsmanna, til að samsvara dæmigerðu neysluviðmiði félagsmálaráðuneytisins. Stjórnvöld hafa aftur á móti boðað tímabundna hækkun á grunnframfærslunni sem nær einungis til þeirra stúdenta sem þéna minna en frítekjumarkið (1.410.000 kr.) á ári. Stúdentaráð er vonsvikið að hækkunin hafi ekki verið hærri og að hún nái einungis til ákveðins hóps stúdenta en ekki til allra þeirra sem taka framfærslulán. Þykir ráðinu það sérstaklega athugavert að eftir að Menntasjóður námsmanna varð settur á fót hafi nú í þrígang verið litið framhjá erfiðri fjárhagsstöðu stúdenta. Ráðið minnir á að á meðan endurskoðun kerfisins stóð á, þá lagði ráðið gríðarlega áherslu á að skýr fyrirmæli til stjórnar Menntasjóðsins væru í lögum sjóðsins um endurskoðun grunnframfærslunar milli ára, til þess að krafa yrði gerð um að stjórn gripi til aðgerða þegar þess væri þörf. Ekki var orðið við þeirri beiðni. 

Því til viðbótar stendur það óbreytt að frítekjumarkið fimmfaldast fyrir þau sem af vinnumarkaði koma eða hafa ekki verið á námslánum síðustu sex mánuði. Stúdentaráð er ennþá þeirrar skoðunar að fimmföldun frítekjumarksins eigi að ná til allra. Þá bendir ráðið á að þó að lágmarks námsframvindukrafa vegna náms yfir sumarið sé ein ECTS-eining þá er upphæð lánsins háð fjölda eininga sem stúdent klárar. Fáir stúdentar líta á námslán sem lausn við fjárhagsvanda sínum og veigra sér frá frekari skuldsetningu.

Geðheilbrigðismál

600 milljónum verður ráðstafað til geðheilbrigðismála fyrir börn og ungmenni til að mæta aukinni eftirspurn vegna faraldursins. Liður í því er að efla þjónustuna á háskólastiginu sem Stúdentaráð fagnar mjög enda er ráðinu annt um líðan stúdenta í námi og hafa Stúdentaráð og skólastjórnendur Háskóla Íslands verið samstíga í að tala fyrir auknum stuðningi í málaflokkinn.

Í kjölfar hertra aðgerða þann 24. mars sl. áttu fulltrúar Stúdentaráðs fund með mennta- og menningarmálaráðherra, lýstu þar yfir áhyggjum varðandi líðan stúdenta og óskuðu eftir aðgerðum. Á fundi með fulltrúum mennta- og menningarmálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins þann 21. apríl sl. gerði forseti Stúdentaráðs grein fyrir stöðunni í Háskóla Íslands, sem er sú að eftirspurnin eftir viðtalsmeðferðum í sálfræðiþjónustu og í hópmeðferðir hefur orðið töluvert meiri samanborið við fyrri ár og umfram getu til að koma til móts við hana. Slíkar aðstæður hafa aldrei orðið áður í rúmlega 30 ára sögu sálfræðiþjónustu Háskóla Íslands.

Kjör á skrifstofu Stúdentaráðs 2021-2022

Isabel Alejandra Díaz var í kvöld endurkjörin forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Kosningin fór fram á sérstökum kjörfundi ráðsins í gegnum fjarfundabúnað en ný Réttindaskrifstofa og nýkjörið Stúdentaráð munu formlega taka til starfa eftir skiptafund í maí. Isabel hlaut fyrst kjör í forseta Stúdentaráðs vorið 2020 og var þá fyrsti einstaklingurinn af erlendum uppruna til að gegna stöðu forseta Stúdentaráðs frá upphafi, á 100 ára afmælisári Stúdentaráðs, en ættir Isabel má rekja til Mið-Ameríku ríkisins El Salvador. Í ár er aftur brotið blað í sögunni þar sem Isabel er fyrsta konan til að gegna embætti forseta Stúdentaráðs tvö ár í röð. 

Isabel leiddi framboðslista Röskvu í kosningum meðal stúdenta til háskólaráðs HÍ og hlaut kjör með flest greidd atkvæði í mars 2020. Hún hefur því samhliða störfum sínum sem forseti Stúdentaráðs sl. ár einnig setið í háskólaráði og mun halda áfram að gera svo næsta árið. Isabel hefur áður setið sem varafulltrúi í Stúdentaráði og sviðsráðum, starfsárið 2018-2019 sinnti hún stöðu varafulltrúa á Hugvísindasviði og á Félagsvísindasviði starfsárið 2019-2020. 

Isabel útskrifaðist með BA gráðu í stjórnmálafræði og spænsku sem aukagrein frá Háskóla Íslands í júní 2020. Meðfram náminu starfaði hún hjá Endurmenntun HÍ, UNICEF og var verkefnastýra Tungumálatöfra 2017-2018, sumarnámskeiðs fyrir tví- og fjöltyngd börn á Ísafirði. Þá útskrifaðist Isabel frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 2016 og hlaut þrenn verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunnir, og var í kjölfarið fjallkona Ísafjarðbæjar 17. júní 2016.

“Síðastliðið ár hefur með skýrum hætti sýnt að rödd stúdenta er mikilvæg, en líka að oftar en ekki þurfi virkilega að vinna fyrir henni. Komandi ár er ekki síður fullt af áskorunum, á sama tíma og við drögum lærdóm af faraldrinum munum við halda áfram að takast á við áhrif hans. Erfið staða stúdenta á vinnumarkaði og innan námslánakerfisins eru málefni sem munu áfram krefjast vandaðrar hagsmunagæslu ásamt því að endurvekja verði önnur mál. Ég er full af eldmóði, þakklæti og tilhlökkunnar fyrir komandi starfsári.” segir Isabel

 

Á kjörfundi voru einnig kjörnir eftirfarandi fulltrúar á Réttindaskrifstofu SHÍ:

Varaforseti: Sara Þöll Finnbogadóttir, fráfarandi Lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs 2020 – 2021.

Hagsmunafulltrúi: Jessý Rún Jónsdóttir, einnig fulltrúi stúdenta í Háskólaráði 2020 – 2022. 

Lánasjóðsfulltrúi: Vífill Harðarson

Beint streymi frá lokahófi Stúdentablaðsins föstudaginn 23. apríl

Næstkomandi föstudag gefst öllum tækifæri á að taka þátt í lokahófi Stúdentablaðsins í beinu streymi!

Í tilefni af útgáfu fjórða og jafnframt síðasta tölublaðs Stúdentablaðsins þetta skólaárið efnir blaðið til útgáfuhófs í beinu streymi föstudaginn 23. apríl. Það verður barsvar með glæsilegum vinningum. VHS liðarnir Stefán Ingvar Vigfússon og Vilhelm Neto fara með uppistand og Kristín Sesselja flytur fyrir ljúfa tóna!
Blaðinu verður dreift um Háskólasvæðið fyrir viðburðinn.
Öll er velkomin á streymið. Viðburðinn er að finna hér.
DAGSKRÁ (birt með fyrirvara um smá skekkju)
20:00 Streymið opnar
20:15 Barsvar
– ath. þátttakendur senda svörin við spurningunum á netfangið studentabladid@hi.is
20:45 Uppistand með VHS liðunum Stefáni Ingvari og Vilhelm Neto
21:00 Kristín Sesselja tekur lagið í boði Landsbankans
Sigurvegari kynntur og slökkt á streymi
(ath. viðburðurinn verður mestmegnis á ensku)

Ný könnun um stöðu og reynslu stúdenta við Háskóla Íslands á tímum COVID-19

Í samstarfi við Amalíu Björnsdóttur og Þuríði Jóhannsdóttur, prófessorar á Menntavísindasviði, leggur Stúdentaráð fyrir ykkur könnun um reynslu stúdenta við Háskóla Íslands af námi á tímum COVID-19 skólaárið 2020–2021. Markmiðið er að halda áfram að kanna viðhorf ykkar á skólaárinu sem er að líða undir lok.

Spurt er hvernig faraldurinn og breytt fyrirkomulag kennslu hefur haft áhrif á námið, fjárhag og líðan. Í lok spurningalistans eru síðan nokkrar spurningar um sumarið sem er framundan hvort stúdentar séu komnir með vinnu og áhuga á sumarnámi. Þátttaka er mjög mikilvæg fyrir okkur til að gæta hagsmuni allra stúdenta með sem bestum hætti. Við biðjum ykkur að svara þessari könnun fyrir 28. apríl næstkomandi.

Ekki er skylda að svara spurningalistanum og það má sleppa einstökum spurningum. Upplýsingar sem koma frá þátttakendum verða ekki samkeyrðar með öðrum gagnasöfnum. 

Frekari upplýsingar um rannsóknina hjá ábyrgðarmanni, Amalíu Björnsdóttir, prófessor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands, amaliabj@hi.is. Meðrannsakandi er Þuríður Jóhannsdóttur, prófessor, Menntavísindasviði Háskóla Íslands, thuridur@hi.is.   

Síðastliðið vor sendu Amalía og Þuríður, prófessorar á Menntavísindasviði, út könnun til allra stúdenta Háskóla Íslands í samstarfi við kennslusvið til að kanna reynslu stúdenta á COVID-19 tímum. Niðurstöður hafa verið birtar í skýrslu og í Tímariti Kennslumiðstöðvar HÍ í lok árs 2020.

Afstaða Stúdentaráðs til sumarnáms og sumarstarfa 2021

Skrifstofa Stúdentaráðs hefur verið í samskiptum við mennta- og menningarmálaráðuneytið og félagsmálaráðuneytið varðandi atvinnuleysisbótakröfuna sem og úrræði fyrir stúdenta fyrir komandi sumar. Stúdentaráð hefur ítrekað afstöðu sína um að skapa þurfi fjölbreytt störf fyrir þann stóra hóp sem stúdentar mynda og að hvert starf yrði að vera til þriggja mánuða í stað tveggja eins og sumarið 2020. Störfin þá voru í raun mun færri en lagt var upp með í byrjun, 3400 störf, og þau sem fengu starf voru þannig alltaf án framfærslu hluta sumars. Það er reiknað samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga, þar sem gert var ráð fyrir 2,2 milljarða til sérstaks átaks til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn 18 ára og eldri.

Hefur ráðið lagt ríka áherslu á að útfærsla sumarstarfanna hafi ekki verið nógu góð. Störfin voru miðuð að fólki í rannsóknartengdum verkefnum, hjá opinberum stofnunum og ráðuneytum, og því ekki hönnuð fyrir öll. Draga má þá ályktun að vanda­málið hafi ekki verið að skortur hafi verið á fólki til að manna sum­ar­störf­in eins og stjórnvöld vildu meina, heldur var fram­boðið ekki nægilegt þeim stóra hópi sem stúdentar mynd­a.

Í erindi sínu til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, félagsmálaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins 25. janúar 2021, tók Stúdentaráð fram að átakið ætti að endurtaka með breyttum áherslum:

„Í ljósi samfélagsástandsins og ákveðinnar óvissu sem því fylgir, leggur Stúdentaráð til að úrræðið sé endurtekið með mun betri útfærslu og framkvæmd svo það nýtist sem flestum. Alla jafna er vandasamt fyrir stúdenta að finna störf sem samræmast þeirra námi og áhugasviði. Með því að skapa svoleiðis tækifæri til frambúðar geta stúdentar nýtt þá þekkingu sem þeir búa yfir og fengið frekari þjálfun á því sviði, sem skilar sér inn í samfélagið. Hér er um að ræða úrræði fyrir núverandi og framtíðar námsfólk og því lykilatriði að skipulagning og framkvæmd sé með bestu móti. Stúdentaráð býður fram krafta sína í það verkefni.“

Þann 9. apríl sl. tilkynntu stjórnvöld að sumarnám og sumarstörf yrðu í boði fyrir námsfólk fyrir sumarið 2021. Stúdentaráð fagnar því að unnið verði að því að skapa sumarstörf og boðið verði upp á sumarnám. Stúdentaráð rekur þó augun í að ráðningartímabil sumarstarfanna mun einungis ná til tveggja og hálfs mánaðar, ekki þriggja eins og stúdentar hafa kallað eftir. Gerir ráðið sér grein fyrir því  að í ár er verið að ráðstafa 2,4 milljörðum en störfum fækkað úr 3.400 í 2.500 til þess að tryggja hærri laun samkvæmt nýjum kjarasamningum og lengra ráðningartímabil. 

Stúdentaráð getur þó ekki annað en furðað sig á því að fjárfestingin og stuðningurinn sé ekki meiri í gegnum faraldurinn, þegar þörfin hefur verið hvað mest. Vonbrigðin eru því vegna síendurtekinna skammtíma aðgerða fyrir stúdenta, hvort sem þær snúast um fjármögnun háskólastigsins og endurskoðun námslánakerfisins eða til að sporna gegn atvinnuleysi og mæta efnahagslegum áhrifum faraldursins.

Sumarnám

Hvað sumarnámið varðar bindur Stúdentaráð vonir við að þeir háskólar sem ætla að bjóða upp á námskeið geti boðið stúdentum námskeið sem koma til með að nýtast þeim í námi sínu, og að tillit sé tekið til þess ef stúdentar sækja nám þvert á skóla. Þá áréttar ráðið að það að fara í sumarnám er með engu móti það sama og að eiga starf sér til framfærslu. Vissulega er það úrræði sem kemur til með að grípa ákveðinn hóp stúdenta en úrræðið skal ekki vera tekið með í reikninginn sem spornun gegn atvinnuleysi, eins og gert var í fyrrasumar, og allra síst þegar þeir stúdentar sem sumarnám sækja þurfa að styðjast við námslánakerfið.

Fjárhagslegt öryggi fyrir stúdenta

Frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á hérlendis hefur Stúdentaráð Háskóla Íslands með mjög skýrum hætti farið með kröfur um aðgerðir fyrir stúdenta, til bæði skemmri og lengri tíma. Stúdentaráð lagði fyrst fram kröfur sínar þann 23. mars 2020 og hafa helstu kröfur ráðsins síðan þá snúið að rétti stúdenta til atvinnuleysisbóta og hækkun grunnframfærslu framfærslulána hjá Menntasjóði námsmanna.

Stúdentaráð hefur skilað af sér alls sjö umsögnum við sjö ólíkum frumvörpum er varða breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og aðgerðum til að draga úr tjóni kórónuveirufaraldursins. Þær umsagnir hafa fyrst og fremst tekið mið af stöðu stúdenta innan atvinnuleysistryggingakerfisins og námslánakerfisins sem og atvinnuleysi stúdenta, og voru skrifaðar í von um að úrræði stjórnvalda næðu einnig til þeirra. Erindi ráðsins til stjórnvalda hafa verið þó nokkur, núna síðast 25. janúar í tilefni af herferð ráðsins um fjárhagslegt öryggi stúdenta, „Eiga stúdenta ekki betra skilið?“. 

Stúdentaráð áréttar af þessu gefnu tilefni eftirfarandi kröfur
  • Stúdentaráð telur nauðsynlegt að tryggja stúdentum rétt til atvinnuleysisbóta í lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006. Almenn skilyrði þess að launamaður eigi rétt á atvinnuleysisbótum má finna í 13. gr. laganna og er þar eitt skilyrðið að vera í virkri atvinnuleit skv. 14. gr. laganna en stúdentar teljast ekki vera í virkri atvinnuleit og eiga almennt ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Stúdentar áttu hins vegar rétt til atvinnuleysisbóta í námshléum fram að 1. janúar 2010, þegar sá réttur var tekinn af þeim.

    Samkvæmt lögum um tryggingagjald renna tekjur ríkisins af atvinnutryggingagjaldi, sem greitt er af launum starfsfólks, til Atvinnuleysistryggingasjóðs og Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga. Í dag er gjaldið 1,35% af launum alls vinnandi fólks og þar á meðal stúdenta. Stúdentar eru samt sem áður undanskildir atvinnuleysistryggingakerfinu.  Ef miðað er við að 70% stúdenta Háskóla Íslands vinni samhliða námi, í hálfu starfi að vetri og fullu starfi að sumri á lágmarkslaunum, nema atvinnutryggingagjöld þess hóps yfir 4 milljarða króna frá 2010. Samkvæmt EUROSTUDENT VI vinna stúdentar þó að meðaltali 26 klst. á viku með námi sem er nær 70% starfshlutfalli og því er talan í raun töluvert hærri en 4 milljarðar. Það er því fráleitt að stúdentar hafi verið án réttinda úr sjóðnum í áratug. Ef við myndum snúa aftur til kerfisins fyrir 2010 myndi vinnandi námsfólk einfaldlega geta sótt sér þann rétt sem það hefur áunnið sér með greiðslu atvinnutryggingagjalds af launum sínum og væru atvinnuleysisbæturnar því í samræmi við hve mikið einstaklingur hefur unnið síðastliðna 36 mánuði, rétt eins og hjá öðrum sem missa vinnuna.

    Atvinnuleysisbótakrafa Stúdentaráðs snýst um að allir stúdentar sem þurfa að sækja sér fjárhagsaðstoðar, sökum atvinnuleysis, hafi kost á því til jafns við aðra vinnandi landsmenn.
     
  • Grunnframfærsla framfærslulána hjá Menntasjóði námsmanna verður að hækka þannig að hún samsvari, að lágmarki, dæmigerðu neysluviðmiði félagsmálaráðaneytisins. Stúdentaráð fagnar því að nýr hópur ráðuneytisstjóra leitar nú leiða til að hækka grunnframfærslu framfærslulána. Stúdentaráð bindur vonir við að tillögur hóps ráðuneytisstjóra skili sér í hækkun umfram verðlagsbreytinga. Þá bindur Stúdentaráð vonir sínar við að Menntasjóðurinn sýni lántökum og endurgreiðendum sama sveigjanleika og sumarið 2020.

 

Stúdentaráð undirstrikar að aðgerðirnar sem hafa verið kynntar fyrir sumarið 2021 séu eitt af þeim mörgum skrefum sem þarf að taka til að tryggja stúdentum fjárhagslegt öryggi. Þá hlakkar ráðið til að sjá framboð sumarstarfa og sumarnáms en ítrekar mikilvægi þess að tryggja að námsmenn verði ekki án atvinnu og framfærslu í sumar, líkt og stjórnvöld taka fram í tilkynningu sinni. Samtímis verður að vinna markvisst að langtímalausnum við að tryggja stúdentum fjárhagslegt öryggi til frambúðar.

Kjörfundur Stúdentaráðs 21. apríl 2021

Kæru stúdentar Háskóla Íslands

Kosningar til Stúdentaráðs eru yfirstaðnar og má nálgast niðurstöður kosninga hér.
Í kjölfar kosninga kýs Stúdentaráð sér fulltrúa til starfa á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs, ásamt því að kjósa í önnur embætti ráðsins á sérstökum kjörfundi. Kjörfundur verður haldinn 21. apríl 2021 kl. 17:00 á Teams. Fundir Stúdentaráðs eru opnir öllum skv. a-lið 9. gr. laga Stúdentaráðs. Óski almennur stúdent eftir að sækja fundinn skal senda beiðni þess efnis á shi@hi.is.

Dagskrá fundarins má finna hér.

Mögulegt er að gefa kost á sér í embætti forseta, varaforseta, hagsmunafulltrúa og lánasjóðsfulltrúa á skrifstofu Stúdentaráðs, í nefndir Stúdentaráðs og önnur embætti á vegum Stúdentaráðs. Þau sem kjörin eru á kjörfundi taka við störfum á skiptafundi, sbr. 4. gr. laga Stúdentaráðs. Kjörgengir til þessara embætta eru öll þau sem hafa verið skráð til náms við Háskóla Íslands á síðustu þremur árum, á undan sérstökum kjörfundi.

Embætti sem kosið er í á skrifstofu Stúdentaráðs, skv. lögum ráðsins:

  • Forseti Stúdentaráðs er kjörinn á kjörfundi.
  • Varaforseti Stúdentaráðs er kjörinn á kjörfundi.
  • Lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs er kjörinn á kjörfundi. Hann situr í stjórn Menntasjóðs námsmanna. Hann tekur þó ekki við af fyrri fullltrúa fyrr en samningaviðræðum um úthlutunarreglur næsta skólaárs er lokið. Skrifstofa Stúdentaráðs skipar varafulltrúa úr hópi starfsfólks í stjórn Menntasjóðsins.  
  • Hagsmunafulltrúi er kjörinn á kjörfundi.

Nefndir Stúdentaráðs, skv. lögum ráðsins:

  • Í fjármála- og atvinnulífsnefnd, jafnréttisnefnd, alþjóðanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, fjölskyldunefnd, félagslífs- og menningarnefnd og lagabreytinganefnd skulu kjörnir fjórir einstaklingar á kjörfundi. 
  • Stúdentaráð skipar tvo aðila í nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd SHÍ og eru þeir kjörnir á kjörfundi. Icelandic Startups skipar einn aðila og sjálf velur nefndin sér fjóra aðila. Auglýsa skal laus pláss meðal nemenda Háskólans að vori.

 

Á kjörfundi kjósa nýkjörnir fulltrúar Stúdentaráðs. Gefi fleiri kost á sér en kosið er ræður hlutfallskosning. Séu fleiri en einn í framboði í tiltekinni kosningu, hlýtur sá einstaklingur sem fær flest atkvæði embættið, svo sá sem þar eftir kemur og svo koll af kolli.

Tilnefningar í embætti skal skila til fundarstjóra sem er jafnframt forseti Stúdentaráðs, Isabel Alejandra Díaz, fyrir kjörfund á shi@hi.is eða á fundinum sjálfum.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans.

Stúdentaráðsfundur 8. apríl 2021

Kæru stúdentar

Fimmtudaginn 8. apríl fer fram Stúdentaráðsfundur á Teams kl 17:00. Óski almennur stúdent eftir að sækja fundinn skal senda beiðni þess efnis á shi@hi.is. Um er að ræða aukafund Stúdentaráðs þar sem fjallað verður um fjárhættuspil og spilafíkn af fagaðilum, í tengslum við aðkomu Háskóla Íslands að rekstri spilakassa í gegnum Happdrætti Háskóla Íslands.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa þá öllum stúdentum og er þeim því velkomið að mæta á fundi ráðsins. 

Dagskrá fundarins má finna hér.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra

 

Viðbrögð Stúdentaráðs vegna úthlutunarreglna Menntasjóðs námsmanna skólaárið 2021-2022

Úthlutunarreglur hjá Menntasjóði námsmanna fyrir skólaárið 2021-2022 hafa verið samþykktar af mennta- og menningarmálaráðherra. 

Stúdentaráð furðar sig á að ákvörðun um hækkun grunnframfærslu framfærslulána hafi ekki legið fyrir þegar úthlutunarreglurnar voru samþykktar. Stúdentar hafa lengi krafist þess að grunnframfærslan sé hækkuð og verið í ítrekuðum samskiptum við stjórnvöld um ferli málsins, því telur Stúdentaráð skjóta skökku við að fulltrúar stúdenta hafi ekki verið upplýstir um stöðu mála og að hækkun myndi ekki liggja fyrir þegar úthlutunarreglurnar voru birtar í gær og að nýjum hópi ráðuneytisstjóra yrði falið að vinna tillögur þess efnis fyrir 1. maí nk.. Stúdentaráð hefur haldið því til streitu að grunnframfærslan verði að hækka þannig að hún samsvari að lágmarki dæmigerðu neysluviðmiði félagsmálaráðuneytisins. 

Stúdentaráð bindur vonir við að stjórnvöld sýni stuðning í verki og að tillögur hóps ráðuneytisstjóra skili sér í hækkun umfram verðlagsbreytinga. Þá tekur ráðið undir athugasemdir SÍNE vegna kjara námsmanna erlendis og telur það vonbrigði að baráttumál SÍNE sé ekki að finna í úthlutnarreglunum. Um er að ræða varnagla sem snýr að því að stjórn sjóðsins verði að kanna hvort námsmenn erlendis eigi rétt á staðaruppbót ef gengissveiflur eru miklar.

Helstu breytingar á úthlutunarreglum Menntasjóðsins fyrir skólaárið 2021-2022

Hækkun á frítekjumarki
Stúdentaráð fagnar því að frítekjumarkið hækkar úr 1.364.000 kr. í 1.411.000 kr. Heimilt er að fimmfalda frítekjumarkið ef stúdent hefur ekki verið að taka námslán hjá sjóðnum s.l. 6 mánuði. Stúdentaráð telur að heimildin nái ekki til allra stúdenta og ítrekar afstöðu sína að öllum súdentum eigi að gefast kostur á að sækja um fimmföldun á frítekjumarkinu.

Aukið svigrúm hvað varðar lánshæfar einingar og lánsrétt
Stúdentaráð fangar auknum svegjanleika fyrir stúdenta sem varða skiptingu á lánsrétti milli námsstiga. Í fyrri úthlutunarreglum voru 180 ECTS-einingar eyrnarmerktar grunnnámi og 120 ECTS-einingar eyrnamerktar meistaranámi. Nú hafa þessi námsstig verið sameinuð og eiga stúdentar rétt á láni fyrir 300 ECTS-einingum í grunn- eða meistaranám. Þetta þýðir að stúdentar hafa svigrúm til að ráðstafa 300 ECTS-einingum í grunn- eða meistaranám. Sameiginlega svigrúmið upp á 120 ECTS-einingar (til viðbótar að eigin vali á grunn-, meistara- eða doktorsstigi) ásamt 60 ECTS-eininga lánsréttur í doktorsnámi er óbreytt.

Undanþága er varðar örorku
Skilyrði fyrir undanþágu vegna námsframvindu vegna örorku er lækkað úr 75% í 50% hlutfall. SHÍ telur að með þessari breytingu eykst aðgengi að menntun fyrir þá námsmenn sem falla undir undanþáguna.

Umsóknarfrestir
Umsóknarfrestir fyrir námslán hafa verið færðir og verða núna 15. september (fyrir haustmisseri), 15. janúar (fyrir vormisseri) og 15. júní (fyrir sumarmisseri). SHÍ fagnar að umsóknarfrestirnir hafi verið færðir örlítið lengra inn á misserin. Þó verður að hafa í huga að aðstæður stúdenta geta breyst verulega á miðju misseri og því telur ráðið að umsóknarfrestirnir séu enn þá of snemma á misserunum.

Séreignarsparnaður greiddur út 2021
Umsækjendur um námslán sem fá greiddan út séreignarsparnað á árinu 20210 geta óskað eftir því að hann verði undanþeginn við útreikning á námsláni skólaárið 2021-2022.

Tekjur vegna vinnu í bakvarðarsveit
Námsmenn geta óskað eftir því að tekjur sem aflað er vegna vinnu fyrir bakvarðasveitir heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar og bakvarðasveit lögreglunnar komi til frádráttar við útreikning á námsláni.Stúdentaráð vekur athygli á að hægt er að finna nánari upplýsingar um endurgreiðslur H-lána í nýjum úthlutunarreglum.
Stúdentaráð vill upplýsa stúdenta að krafan um þinglýsta leigusamninga er enn að finna í úthlutunarreglum næsta skólaárs.