Saga skrásetningargjaldsins

Hér að neðan má lesa samantekt um sögu skrásetningargjaldamálsins, upphaf þess og helstu þætti. 

Háskólinn óskar eftir hækkun skrásetningargjalda – stúdentar mótmæla

Þann 6. febrúar 2020, á fundi háskólaráðs, var rætt um hækkun skrásetningargjaldsins við HÍ úr 75.000 kr. í 104.000 kr. fyrir árið 2020 og í 107.000 kr. fyrir árið 2021. Háskólaráð taldi upphæðina eiga að vera hærri miðað við forsendur fjárlaga um verðhækkanir. Öll í háskólaráði, utan fulltrúa stúdenta, greiddu atkvæði með tillögunni. Háskólaráð faldi rektor því að taka málið upp við rektora annarra opinberra háskóla og mennta- og menningarmálaráðherra. 

Þann 26. febrúar 2020 sendir Stúdentaráð frá sér yfirlýsingu, sem ráðið samþykkti einróma. Í yfirlýsingunni kemur fram að Stúdentaráð leggist afdráttarlaust gegn hækkun skrásetningargjalda við Háskóla Íslands, ráðið dregur fram að fjárframlög ríkisins til háskóla þurfi að hækka og að ekki sé rétt að sækja það fé sem vantar í vasa stúdenta.

25. janúar 2021 sendi Stúdentaráðs frá sér erindi þar sem óskaði var eftir viðbrögð stjórnvalda við fjárhagsstöðu stúdenta. Þar undirstrikaði ráðið afstöðu sína gegn skrásetningagjaldinu.

 

Nemandi kærir skrásetningargjaldið

Þann 25. ágúst 2021 kærir fyrrum hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs og nemandi við Háskóla Íslands, Jessý Jónsdóttir, skrásetningargjaldið til háskólaráðs. Kærandi telur gjaldið ekki standast lagaáskilnaðarreglu um þjónustugjöld eða að ákveðnir kostnaðarliðir þess standist lög um opinbera háskóla nr. 85/2008.

 

Háskólaráð taldi gjaldið löglegt

Þann 7. október 2021 hafnaði Háskólaráð kærunni að öllu leyti, ráðið taldi gjaldið réttmætt og rúmast innan lagarammans.

Á Stúdentaráðsfundi 18. maí 2022 samþykkti Stúdentaráð heildarstefnu ráðsins þar sem tekið er fram að ráðið efist um lögmæti skrásetningagjaldsins.

 

Úrskurður háskólaráðs felldur úr gildi

Niðurstaða háskólaráðs var kærð til áfrýjunarnefnd kærumála háskólanema þann 15. nóvember 2021. Niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar (8/2021 A gegn Háskóla Íslands) barst þann 19. ágúst 2022, nefndin felldi ákvörðun háskólaráðs úr gildi. Ástæðan var sú að nefndin taldi háskólaráð ekki byggja útreikninga sína á raunverulegum kostnaði. Háskólaráð notaðst við útreikninga frá árinu 2015. Áfrýjunarnefndin krafði háskólaráð um að endurskoða kostnaðarliðina, samkvæmt rauntölum, og gera grein fyrir þeim.

 

Háskólaráð hafnar kröfunni, aftur

Þann 8. september 2022 óskar kærandi, Jessý Jónsdóttir, eftir endurupptöku málsins hjá háskólaráði.

Þann 3. nóvember 2022 sendi Stúdentaráð Háskóla Íslands frá sér yfirlýsingu í kjölfar brots háskólaráðs á stjórnsýslulögum við ákvörðun á skrásetningargjaldi.

Síðar þann 3. nóvember 2022 hafnar háskólaráð kröfu Jessýjar í annað sinn. Öll í háskólaráði, utan fulltrúa stúdenta, kusu með þessari endurskoðuðu ákvörðun háskólaráðs vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar. Á fundinum tóku fulltrúar stúdenta í háskólaráði undir yfirlýsingu Stúdentaráðs sem birt hafði verið fyrr um daginn. Fulltrúarnir nefndu að eðlileg vinnubrögð fælu í sér að taka skrásetningargjaldið fyrir árlega og þannig ganga úr skugga um að forsendur þess hafi ekki breyst áður en það er innheimt.

Í kjölfarið hélt Stúdentaráð umræðufund þann 23. nóvember 2022 um skrásetningargjaldið.

Háskóli Íslands vill hækka skrásetningjargjöldin, aftur

Á fundi háskólaráðs þann 8. desember 2022 var tilkynnt að rektor hefði, ásamt rektorum hinna opinberu háskólanna, sent bréf til háskóla-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra þar sem óskað var eftir heimild til hækkunar skrásetningargjalda í 95.000 kr. Fulltrúar stúdenta í háskólaráði gagnrýndu harkalega áform um hækkun skrásetningargjaldsins og að þau áform hefðu ekki verið borin undir háskólaráð áður. 

Þann 14. desember 2022 sendi Stúdentaráð Háskóla Íslands frá sér yfirlýsingu vegna undirfjármögnunar Háskóla Íslands og umræðna um hækkun skrásetningargjalda þar sem fjallað var um tengsl vanfjámögnunar háskólastigsins og hækkunar skrásetningargjaldsins.

 

Úrskurður háskólaráðs felldur úr gildi, aftur

Kæra (4/2022) barst áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema þann 17. nóvember 2022 og nefndin skilaði úrskurði þann 5. október 2023. Áfrýjunarnefndin felldi þar með úr gildi ákvörðun háskólaráðs, sem hafnaði endurgreiðslu skrásetningargjalds til Jessýjar Jónsdóttur, nemanda. Áfrýjunarnefndin telur framkvæmdina ekki eiga sér lagastoð. Enn fremur segir í úrskurðinum að  „grundvöllur fyrir innheimtu skrásetningargjalds HÍ, eins og hann liggur fyrir í dag, sé ekki fullnægjandi og brjóti þannig gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins“.

 

Stúdentaráð krefst endurgreiðslu

Þann 26. október 2023 sendi Stúdentaráð Háskóla Íslands frá sér erindi þar sem endurgreiðslu ólögmætra skrásetningargjalda er krafist. Þess er krafist að Háskóli Íslands endurgreiði öllum þeim sem greitt hafa skrásetningargjöld við skólann síðan árið 2014.

Skrásetningargjöld Háskóli Íslands ólögmæt

Háskóli Íslands hefur brotið lög. Við krefjumst þess að ofrukkun skrásetningargjalda verði leiðrétt tafarlaust. 

 

Samkvæmt úrskurði áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema frá 5. október sl. hefur Háskóli Íslands byggt á ófullnægjandi forsendum við ákvörðun fjárhæðar skrásetningargjaldsins. Stúdentar geta því ekki fengið upplýsingar um hvað þeir eru að greiða fyrir.

 

Aðdragandi málsins

Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur löngum dregið lögmæti skrásetningargjaldsins í efa, málið var fyrirferðamikið hjá Stúdentaráði síðasta starfsárs en upphaf þess má rekja allt til vorsins 2020 þegar háskólaráð ályktaði að fela rektor að leitast við að hækka skrásetningargjaldið í 104.000 kr. Þrátt fyrir að gjaldið hafi ekki verið hækkað í kjölfarið, hélt vinna Stúdentaráðs áfram. 

 

Í september 2020 krafði nemandi við HÍ og hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs, Jessý Jónsdóttir,  háskólaráð um endurgreiðslu fyrir þann hluta skrásetningargjaldsins sem húntaldi að lög heimili ekki að skólinn rukki fyrir. Skrásetningargjöld í opinbera háskóla eru þjónustugjöld sem verða að byggja á lögum og má að meginstefnu einungis innheimta fyrir þá þjónustu sem veitt er þeim sem greiðir gjaldið. Háskólaráð hafnaði kröfu nemandans og rökstuddi þá afstöðu með því að sundurliðun fjárhæða kostnaðarliða sem búi að baki skrásetningargjaldinu séu áætlaðar út frá raunútgjöldum ársins 2015. Málinu var fylgt eftir og í október 2022 komst áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema að þeirri niðurstöðu að Háskóli Íslands hafi brotið rannsóknarreglu við ákvörðun skrásetningargjaldsins og ekki staðið rétt að útreikningum skrásetningargjaldsins. Þessi úrskurður staðfesti þann grun Stúdentaráðs að gjaldið geti ekki eingöngu talist skrásetningargjald heldur sé það betur skilgreint sem skólagjöld. Háskólaráð tók málið þá aftur fyrir en hafnaði kröfunni enn á ný, með vísan til nýrra útreikninga. Nú hefur áfrýjunarnefndin afdráttarlaust komist að því að tilteknir gjaldliðir standist ekki lög. 

 

Afstaða Stúdentaráðs

Úrskurður áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema í máli nr. 4/2022 frá 5. október 2023 felur í sér að úrskurður háskólaráðs frá 3. nóvember 2022, um höfnun á endurgreiðslu skrásetningargjalds til kæranda málsins, var felldur úr gildi. Úrskurðurinn er byggður á þeirri niðurstöðu áfrýjunarnefndar að ekki liggi nægjanlega traustir útreikningar eða kostnaðaráætlanir fyrir við ákvörðun skrásetningargjaldsins. Þar sem skrásetningargjöld við opinbera háskóla teljast til þjónustugjalda er nauðsynlegt að fjárhæða gjaldsins byggi á traustum útreikningum eða fullnægjandi áætlunum. Þetta hafi skort og því telst Háskóli Íslands hafa brotið gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttar. Þann 26. október 2023 sendi Stúdentaráð frá sér erindi þar sem krafist var endurgreiðslu ólögmætra skrásetningargjalda allt aftur til ársins 2014. 

 

Stúdentar eiga ekki að fjármagna Háskólann

Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur um árabil bent á afleiðingar þess að opinber háskólamenntun á Íslandi sé undirfjármögnuð og að afleiðingar þess bitni helst á stúdentum. Þykir okkur bæði sorglegt, ófaglegt og óásættanlegt að Háskóli Íslands seilist í vasa stúdenta til að afla fjár til að brúa það bil sem vanfjármögnun opinberu háskólanna leiðir af sér. Það á að vera á ábyrgð stjórnvalda að styrkja opinbera háskólamenntun, ekki stúdenta. 

 

Stúdentar eru almennt tekjulítill hópur sem stendur fjárhagslega höllum fæti. Okkur þykir óásættanlegt að verið sé að krefja stúdenta um ólöglegar og íþyngjandi greiðslur. Könnun Stúdentaráðs, sem lögð var fyrir nemendur í apríl síðastliðnum, sýna sláandi niðurstöður um fjárhagsstöðu stúdenta. Staðan er verulega slæm, námslán grípa ekki þau sem þurfa á þeim að halda og of margir stúdentar neyðast til að vinna með námi til að eiga möguleika á að ná endum saman. Í augum margra eru 75.000 kr ekki há upphæð en fyrir stúdenta skiptir hver króna máli, sérstaklega þegar hún hefur verið innheimt ólöglega og er innheimt árlega, svo fljótlega safnast þetta upp og getur haft verulega þýðingu fyrir fjárhag stúdents.

 

Oft ber Ísland sig saman við önnur Norðurlönd. Þegar kemur að stuðningi við opinbera háskólamenntun erum við eftirbátur þeirra þjóða sem við viljum bera okkur saman við. Stuðningur við nemendur hér á landi er umtalsvert minni en gengur og gerist í nágrannalöndunum. Forsenda samkeppnishæfni háskólamenntunar og samkeppnishæfni íslenskra stúdenta við opinbera háskóla gagnvart nemendum annarra Norðurlanda er raunverulegur og fullnægjandi stuðningur hins opinbera.

 

Stúdentaráð hefur krafist þess að Háskóli Íslands endurgreiði skrásetningargjöld sem hafa verið innheimt á ólöglegan hátt. Það gengur ekki að stúdentar séu látnir halda uppi fjármögnun opinberra háskóla. Við leggjum þunga áherslu á að grundvallarvandinn sem háskólastigið á Íslandi glímir við í dag sé alvarleg vanfjármögnun sem hefur valdið því að ráðist er í þessa ólögmætu gjaldtöku en á því bera stjórnvöld alla ábyrgð.

Erindi Stúdentaráðs Háskóla Íslands um fjárhagsstöðu stúdenta

Á stúdentaráðsfundi 19. október sl. samþykkti stúdentaráð að senda erindi til Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins og Fjármála- og efnahagsráðuneytisins um fjárhagsstöðu stúdenta. Tilefnið er að á haustþingi ber Alþingi að endurskoða lög um menntasjóð námsmanna nr. 60/2020, en í núverandi horfi veitir námslánakerfið svo lítinn stuðning við stúdenta að um 70% stúdenta vinna á sama tíma og kennsla fer fram. Af þeim sögðust 72% vinna vegna þess að annars hefðu þau ekki efni á að stunda nám.

Í erindi Stúdentaráðs segir: „Stjórnvöld verða að horfast í augu við þá staðreynd að þetta er vottorð, svart á hvítu, um að námslánakerfið hér á landi sé vanfjármagnað […]. Því hagstæðari sem námslánin eru, þeim mun líklegri er sá hópur sem er „of mikið“ á vinnumarkaði til þess að huga betur að náminu. Þetta virðist alveg hafa farið fram hjá íslenskum stjórnvöldum.“

„Áratugum saman hefur Stúdentaráð Háskóla Íslands bent á að fjárfesting í stuðningi við stúdenta er allt of lítil þrátt fyrir að þess megi vænta að ríkisútgjöld til þeirra mála borgi sig margfalt til baka, jafnvel þótt aðeins sé litið til skatta sem háskólamenntað fólk greiðir og litið fram hjá öðrum ávinningi. Þetta er grundvallarvandinn við námslánakerfið á Íslandi og engar hagræðingar eða tilfærslur á styrkjaleiðum munu leysa hann.“

Erindið má nálgast hér.

 

Samstarfsverkefni SHÍ og Krónunnar

Við kynnum með stolti nýtt samstarf SHÍ og Krónunnar! 

 

Nú geta íbúar á stúdentagörðum við HÍ (Eggertsgötu, Sæmundargötu, Suðurgötu og Hótel Sögu) fengið heimsendingu á betri kjörum með kóðanum “SHI1920”. 

Til þess að virkja afsláttinn er farið inn í mínar síður, sem er hægra megin um leið og Krónu-appið er opnað. Svo er ýtt á þrjár línur sem birtast uppi í hægra horni. Þar er svo ýtt á stillingar og þar neðst niðri stendur kóði fyrir íbúakjarna. Þar er kóðinn SHI1920 sleginn inn, þá á kóðinn að virkjast sjálfkrafa þegar pantað er. Athugið að einungis er hægt að nýta afsláttarkóðann á ákveðnum tímasetningum en nánari upplýsingar um þær er að finna í appinu.

 

Við erum afar spennt fyrir þessu samstarfi og vonumst til þess að þetta sé aðeins byrjunin á farsælu samstarfi SHÍ og Krónunnar!

Stúdentaráðsfundur 26. október 2023

Fimmtudaginn 26. október 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 16:00 í stofu HT-300.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá:

  1. Forseti Stúdentaráðs setur fund 16:00-16:05 
  2. Erindi vegna skrásetningargjalda (atkvæðagreiðsla) 16:05-16:45 
  3. Önnur mál 16:45-16:50 
  4. Fundi slitið 16:50

Opið fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun Stúdentasjóðs

Búið er að opna fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun Stúdentasjóðs 2023-2024. 

Umsóknareyðublað er að finna hér og mælum við með að þið kynnið ykkur sjóðinn þar, sérstaklega lög og verklagsreglur hans, áður en sótt er um. Tekið er við umsóknum til 12:00 þriðjudaginn 31. október 2023 Umsóknum sem berast eftir þann tíma verður sjálfkrafa vísað frá. 

Dæmi um styrki sem veittir eru í þessari úthlutun eru félaga- og höfðatölustyrkir fyrir nemendafélög, ferðastyrkir, ráðstefnustyrkir og viðburðarstyrkir.

ATH. framfærslustyrkir og greiningarstyrkir verða veittir í næstu úthlutun.

Spurningum skal vísað til Dagnýjar Þóru Óskarsdóttur, forseta sjóðsins, á netfangið studentasjodur@hi.is

Stúdentaráðsfundur 19. október 2023

Fimmtudaginn 19. október 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu TH 102.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá:

  1. Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
  2. Fundargerð síðasta fundar Stúdentaráðs þann 20. september borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
  3. Eftirstandandi tilnefningar í nefndir og sviðsráð Stúdentaráðs (atkvæðagreiðsla) 17:10-17:15
  4. Tilkynningar og mál á döfinni 17:15-17:30
  5. Félagsstofnun stúdenta – Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri FS (kynning og umræður) 17:30-18:15
  6. Fjárhagsáætlun SHÍ 2023-24 kynnt – Guðmundur Ásgeir Guðmundsson, framkvæmdastjóri SHÍ (atkvæðagreiðsla) 18:15-18:30
    Hlé 18:30-18:40
  7. Erindi um fjárhagsstöðu stúdenta í ljósi endurskoðunar á lögum um Menntasjóðs námsmanna – Gísli Laufeyjarson Höskuldsson, Lánasjóðsfulltrúi SHÍ (umræður og atkvæðagreiðsla) 18:40-18:50
  8. Niðurstöður stefnumótunardags – framkvæmdaáætlanir fastanefnda (umræður og atkvæðagreiðsla) 18:50-19:05
  9. Niðurstöður stefnumótunardags – skýrsla (umræður ) 19:05-19:15
  10. Tillaga um Aukið gagnsæi í rekstri Félagsstofnun stúdenta – Júlíus Viggó Ólafsson 19:15-19:25
  11. Tillaga um sjötta meðlim Fjármála- og atvinnulífsnefndar –  Danival Örn Egilsson 19:25- 19:35
  12. Tillaga um að reglugerðir um salerni verði uppfærð – Kristmundur Pétursson og Rannveig Klara Guðmundsdóttir 19:35-19:45
  13. Önnur mál 19:45-20:00
  14. Bókfærð mál
  15. Fundi slitið 20:00

Stúdentaráðsfundur 9. október 2023

Mánudaginn 9. október 2023 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu TH 101.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá:

  1. Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
  2. Lagabreytingar (umræður og atkvæðagreiðsla) 17:05-18:25
  3. Önnur mál 18:25-18:30
  4. Fundi slitið 18:30