4. fundur Stúdentaráðs

Þriðjudaginn 25. september 2024 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í stofu N-132, Öskju.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

  1. Fundur settur 17:00 – 17:05
  2. Fundargerð fundar þann 26. ágúst 2024 borin upp til samþykktar 17:05 – 17:10
  3. Ný fundarsköp kynnt 17:05 – 17:10
  4. Kynning frá Laufinu 17:10 – 17:30
  5. Tillaga um endurskoðun á skilgreiningu félaga sem starfa innan háskólans 17:30 – 17:40
  6. Tillaga um takmörkun ábyrgðar vegna októberfest 17:40 – 17:50
  7. Tillaga um stöðumat á líðan nemenda 17:50 – 18:00
  8. Fundarhlé 18:00 – 18:10
  9. Tillaga um skráningu á vinnu skrifstofu Stúdentaráðs 18:10 – 18:20
  10. Framkvæmdaáætlun fjölskyldunefndar 18:20 – 18:30
  11. Framkvæmdaáætlun fjármála- og atvinnulífsnefndar 18:30 – 18:40
  12. Framkvæmdaáætlun félagslífs- og menningarnefndar 18:40 – 18:50
  13. Framkvæmdaáætlun jafnréttisnefndar 18:50 – 19:00
  14. Fundarhlé 19:00 – 19:10
  15. Tillaga um vatns- og kaffivélar 19:10 – 19:20
  16. Tillaga um aukið aðgengi að sálfræðiþjónustu 19:20 – 19:30
  17. Tillaga um að Stúdentaráð beiti sér fyrir upptöku samgöngukorts 19:30 – 19:40
  18. Tillaga um að bæta Eduroam og nettengingu innan skólans 19:40 – 19:50
  19. Bókfærð mál og tilkynningar 19:50 – 20:00
  20. Önnur mál 19:50 – 20:00

Uppfært þann 21. september.

Rafræn nemendaskírteini

Nú getur þú fengið rafrænt nemendaskírteini beint í Aur-appið! SHÍ hefur tryggt fjöldan allan af afsláttum fyrir stúdenta, og hægt er að sjá afslættina hérna.

Til að nálgast rafræna nemendaskírteinið þarf að skrá sig sérstaklega hér. Það getur tekið nokkra daga fyrir skírteinið að virkjast í appinu.

ATH Uppfært 24.06.2025
Við erum að endurskoða rafrænu nemendaskírteinin. Hægt verður að sækja um þau að nýja í byrjun næsta skólaárs.

Afhending armbanda og bjórkorta – Októberfest 2024

Hægt verður að sækja armbönd og bjórkort á Háskólatorgi frá 11:30-15 á morgun, 10-15 á miðvikudag og frá 10-15:40 á fimmtudag og föstudag.

Við vekjum athygli ykkar á því að öll armbönd verða sett á miðahafa af starfsfólki og því verður ekki hægt að sækja armbönd fyrir aðra. Minnum ykkur á að hafa stúdentakortin meðferðis þegar armböndin eru sótt.

Afhending mun einnig fara fram fyrir framan hátíðarsvæði frá kl. 17:30 á fimmtudag, föstudag og laugardag.

Hægt er að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs ef spurningar vakna með tölvupósti á netfangið shi@hi.is eða í síma 570 0850.