Stúdentar eiga þrjá fulltrúa í stjórn Félagsstofnunar stúdenta sem sitja til tveggja ára í senn. Skipað var síðast í stjórn árið 2023 og er því kominn tími á að gera það aftur. Samkvæmt reglugerð fyrir Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands er stjórnin skipuð fimm mönnum til tveggja ára: háskólaráðuneytið skipar einn fulltrúa, háskólaráð skipar einn fulltrúa og Stúdentaráð skipar þrjá fulltrúa.
Hæfniskröfur
- Áhugi á Stúdentaráði og þekking á málefnum stúdenta
- Reynsla af hagsmunabaráttu stúdenta er kostur
- Virk þátttaka í háskólasamfélaginu er kostur
- Þekking á stjórnsýslu Háskóla Íslands er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Geta til að tjáningar í ræðu og riti á íslensku
Ætlast er til þess að umsækjandi stundi ekki nám við Háskóla Íslands á skipunartímanum og beri hag stúdenta og Félagsstofnunar stúdenta fyrir brjósti.
Kynningarbréfi og ferilskrá skal skilað á netfang Stúdentaráðs shi@hi.is. Umsóknarfrestur er til 23:59 þann 20. maí 2025 og verða umsóknir sem berast eftir þann tíma ekki teknar gildar.