Opið fyrir umsóknir í aðra úthlutun Stúdentasjóðs

Opið fyrir umsóknir í aðra úthlutun Stúdentasjóðs
Búið er að opna fyrir umsóknir í aðra úthlutun Stúdentasjóðs. Hægt er að sækja um styrki með eyðublaðinu hér til 22:00 þann 22. desember næstkomandi. Við hvetjum ykkur eindregið til þess að fara eins ítarlega eftir leiðbeiningum í umsóknarskjali og kostur er, en frávik frá reglum getur varðað frávísun umsóknar.
Áður en sótt er um hvetjum við ykkur til að kynna ykkur Stúdentasjóð á heimasíðu Stúdentaráðs og sérstaklega lög hans. Hér er hægt að nálgast helstu upplýsingar um sjóðinn samandregnar.
Spurningum skal vísað til Bríetar Magnúsdóttur, formanns sjóðsstjórnar, á netfangið studentasjodur@hi.is. eða til Réttindaskrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Fastir styrkir til félaga verða ekki veittir í þessari úthlutun.
Í fyrsta skipti verður boðið upp á bílastæðastyrk fyrir nemendur sem þurfa að keyra langa leið í skólann. Stjórn sjóðsins hefur eyrnamerkt fjármagn sem verður skipt milli nemenda sem eru með lögheimili utan höfuðborgasvæðisins. Nauðsynlegt er að skila inn staðfestingu á lögheimili sem hægt er að nálgast á island.is, það er ekki nauðsynlegt að óska eftir vottorði frá þjóðskrá.