Opið fyrir umsóknir í þriðju úthlutun Stúdentasjóðs

Búið er að opna fyrir umsóknir í þriðju úthlutun Stúdentasjóðs. Hægt er að sækja um styrki með eyðublaðinu hér til 22:00 þann 30. janúar næstkomandi. Við hvetjum ykkur eindregið til þess að fara eins ítarlega eftir leiðbeiningum í umsóknarskjali og kostur er, en frávik frá reglum getur varðað frávísun umsóknar.

Áður en sótt er um hvetjum við ykkur til að kynna ykkur Stúdentasjóð á heimasíðu Stúdentaráðs og sérstaklega lög hans. Hér er hægt að nálgast helstu upplýsingar um sjóðinn samandregnar. Athugið að greiningarstyrkir og framfærslustyrkir verða ekki veittir í þessari úthlutun.

Spurningum skal vísað til Bríetar Magnúsdóttur, formanns sjóðsstjórnar, á netfangið studentasjodur@hi.is. eða til Réttindaskrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

 

Uppfært: Frestur er til mánudagsins 2 febrúar kl: 22:00

Fundarboð – 5. fundur Stúdentaráðs

Þriðjudaginn 27. janúar 2026 fer fram Stúdentaráðsfundur kl. 17:30 í stofu N-132, Öskju.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta, og öllum áhugasömum er velkomið að mæta.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570 0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Dagskrá

Fundur settur. 

17:30

Fundargerð fyrri fundar borin upp til samþykktar.

17:30-17:35

Tillaga um aukið aðgengi að tíðarvörum á salernum Háskólans.

Flutningsmaður: Jón Gnarr

17:35-17:45

Tillaga að Stúdentaráð þrýsti á Háskóla Íslands að stöðva niðurskurð á námsframboði.

Flutningsmaður: María Björk Stefánsdóttir

17:45-17:55

Tillaga að Stúdentaráð Háskóla Íslands beiti sér fyrir áframhaldandi inntökuprófum á Akureyri samhliða prófum í Reykjavík.

Flutningsmaður: Eiríkur Kúld Viktorsson

17:55-18:05

Fundarhlé

18:05-18:20

Tillaga um ítrekun upptökuprófa á Félagsvísindasviði.

Flutningsmaður: Valeria Bulatova

18:20-18:30

Tillaga um að SHÍ beiti sér fyrir að sérrýmum fyrir nemendafélög í Öskju.

Flutningsmaður: Guðný Helga Sæmundsen

18:30-18:40

Tillaga um skiptiborð í Eirbergi. 

Flutningsmaður: Guðlaug Eva Albertsdóttir

18:40-18:50

Tillaga um aukinn sýnileika sálfræðiþjónustu Háskóla Íslands.

Flutningsmaður: Halldóra Elín Einarsdóttir

18:50-19:00

Tillaga að bættri prentþjónustu í Háskólanum.

Flutningsmaður: Magnús Hallsson

19:00-19:10

Kynning á framkvæmdaáætlunum fastanefnda SHÍ.

19:10-19:50

Bókfærð mál og tilkynningar.

19:50-19:55

Önnur mál

19:55-20:00

Atkvæðagreiðsla fer fram um liði I.-IV. og VI.-X.

Stúdentaráðsfundur 27. janúar 2026

Þriðjudaginn 27. janúar 2026 fer Stúdentaráðsfundur fram kl 17:30.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins. Athugið að fundurinn fer fram á íslensku.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá verður tilkynnt síðar, frestur til að skila inn tillögum er til og með 20. janúar 2026.