Skiptafundur Stúdentaráðs 29. maí 2026

Föstudaginn 29. maí fer fram stúdentaráðsfundur kl. 16:30 í stofu N-132, Öskju.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta og öllum áhugasömum er velkomið að mæta. Ef einhverjar breytingar verða á dagskrá fundarins eða staðsetningu hans má finna þær á vefsíðu Stúdentaráðs, student.is.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570-0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá:

1. Forseti Stúdentaráðs setur fund 16:30–16:35

2. Fundargerð stúdentaráðsfundar 11. mars 2026 borin upp til samþykktar 16:35–16:40

3. Drög að ársreikningi Stúdentaráðs 2025–2026 kynnt 16:40–16:55

4. Ársskýrsla Stúdentaráðs 2025–2026 kynnt 16:55–17:20

5. Önnur mál 17:20–17:25

Nýtt Stúdentaráð 2026-2027 tekur við

1. Nýr forseti Stúdentaráðs setur fund 17:25

2. Fundargerð kjörfundar borin upp til samþykktar 17:25–17:30

3. Praktísk atriði til nýrra stúdentaráðsliða 17:30–17:45

4. Fundarhlé 17:45–17:55

5. Tillaga gegn bílastæðagjöldum á Stúdentagörðum 17:55–18:05

Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði

6. Tillaga um að Stúdentaráð beiti sér fyrir bættri aðstöðu nemendafélaga innan Háskólans 18:05–18:15

Flutningsmenn: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði, og Vera Mist Magnúsdóttir, forseti sviðsráðs Heilbrigðisvísindasviðs og stúdentaráðsliði

7. Tillaga um möguleika á vettvangsnámi á eigin vinnustað 18:15–18:25

Flutningsmaður: Ragnar Leó Sigurgeirsson, stúdentaráðsliði

8. Tillaga að bættri aðstöðu og endurnýjun á aðbúnaði í Odda 18:25–18:35

Flutningsmenn: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði, Gabríel Leó Ívarsson, stúdentaráðsliði, og Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði

9. Samstarfssamningur við Visku kynntur 18:35–18:45

10. Önnur mál 18:45-18:50

11. Fundi slitið 18:50

Auglýst eftir alþjóðafulltrúa, framkvæmdastjóra, kjarafulltrúa og ritstjóra

Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöður alþjóðafulltrúa, framkvæmdastjóra, kjarafulltrúa og ritstjóra fyrir starfsárið 2026-2027

Alþjóðafulltrúi:

Alþjóðafulltrúi hefur yfirumsjón með framkvæmd þjónustu skrifstofu Stúdentaráðs við erlenda nemendur og hefur það hlutverk að gæta hagsmuna þeirra, auðvelda þeim að gerast virkir þátttakendur í háskólasamfélaginu, svara fyrirspurnum og veita aðra aðstoð.

Alþjóðafulltrúi er trúnaðarfulltrúi erlendra nemenda við Háskóla Íslands og skal veita viðtöl, símaþjónustu og svara tölvupóstum eftir þörfum þeirra. Í samvinnu við skrifstofu Alþjóðasviðs hefur alþjóðafulltrúi milligöngu um að verða erlendum nemendum úti um tengilið (mentor) úr hópi nemenda Háskóla Íslands. Þá aðstoðar alþjóðafulltrúi skrifstofu Alþjóðasviðs við skipulagningu viðburða, svo sem móttöku erlendra nemenda og Alþjóðadaga Háskóla Íslands. Auk þess er alþjóðafulltrúi forseti alþjóðanefndar Stúdentaráðs og tekur þátt í daglegum störfum skrifstofu Stúdentaráðs í samráði við forseta ráðsins.

Alþjóðafulltrúi starfar einnig sem fulltrúi stúdenta innan alþjóðlega samstarfsnetsins Aurora. Hann hefur umsjón með verkefnum þar, starfar með tengiliðum Aurora innan Háskóla Íslands og aðstoðar við verkefni sem þau fela honum. Hann sér einnig um undirbúning fyrir ráðstefnur og fleiri viðburði tengdum Aurora og tekur þátt eins og við á.

Hæfniskröfur:

  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Fullnægjandi kunnátta á íslensku og ensku er skilyrði
  • Áhugi á Stúdentaráði og málefnum stúdenta auk virkrar þátttöku í háskólasamfélaginu
  • Þekking og reynsla af alþjóðastarfi er kostur
  • Þekking á stjórnsýslu Háskóla Íslands er kostur
  • Þekking á Aurora samstarfsnetinu er kostur
  • Reynsla af viðburðastjórnun er kostur
  • Önnur tungumálakunnátta er kostur
  • Reynsla af stefnumótun er kostur

Starfshlutfall er í kringum 50% eða eftir samkomulagi.

Kynningarbréf ásamt ferilskrá og upplýsingum um umsagnaraðila skal skila í gegnum tölvupóst á netfang Stúdentaráðs shi@hi.is merkt „Atvinnuumsókn“.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar gildar.

Framkvæmdastjóri:

Framkvæmdastjóri tekur þátt í að vinna að skilvirkum og góðum starfsháttum á skrifstofu Stúdentaráðs. Hann gætir fjármuna og eigna Stúdentaráðs, vinnur að hagkvæmni í fjárútlátum og heldur upplýsingaflæði milli skrifstofu og Stúdentaráðs.

Framkvæmdastjóri hefur yfirumsjón með fjármálum Stúdentaráðs, umsjón með rekstri skrifstofunnar, þar með talið tímaskráningum starfsfólks hennar og greiðslu launa. Hann sér um samningsgerðir á vegum Stúdentaráðs og eftirfylgni þeirra, sér um auglýsingasöfnun í útgefið efni Stúdentaráðs ásamt því að rita fundargerðir Stúdentaráðs og stjórnar Stúdentaráðs. Auk þess tekur framkvæmdastjóri þátt í daglegum störfum skrifstofunnar í samráði við forseta.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á Stúdentaráði og málefnum stúdenta auk virkrar þátttöku í háskólasamfélaginu.
  • Þekking og reynsla á fjármálum og bókhaldi.
  • Vilji og geta til þess að vinna með stúdentaráðsliðum, starfsfólki skrifstofu Stúdentaráðs og öðrum hagsmunaaðilum ráðsins.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði.
  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Þekking á bókhaldshugbúnaði er kostur.
  • Þekking á stjórnsýslu Háskóla Íslands er kostur.
  • Reynsla af viðburðastjórnun er kostur.
  • Önnur þekking og reynsla sem nýtist í starfi.

Starfshlutfall er breytilegt eða eftir samkomulagi.

Kynningarbréf ásamt ferilskrá og meðmælum skal senda í tölvupósti á netfang ráðsins: shi@hi.is merkt „Atvinnuumsókn“.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar gildar.

Kjara- og sjálfbærnifulltrúi

Kjara- og sjálfbærnifulltrúi vinnur í nánu samstarfi við Visku við að efla vitund háskólanema um kjara- og réttindamál á vinnumarkaði og við að veita þjónustu til háskólanema er varðar kjör og réttindi þeirra á vinnumarkaði. Þá vinnur fulltrúinn að sjálfbærnimálum innan háskólans í samstarfi við Sjálfbærnisvið HÍ í því markmiði að efla vitund háskólanema um sjálfbærni og stuðla að sjálfbærari háskólasamfélagi. 

Helstu verkefni eru þar á meðal að skipuleggja fræðsluviðburði tengda sjálfbærni og kjaramálum, miðla upplýsingum um sjálfbærnimál innan SHÍ og Háskóla Íslands, halda utan um yfirlit og framvindu verkefna og skýrslugerð um stöðu og þróun kjara- og sjálfbærnimála innan háskólasamfélagsins.

Hæfniskröfur:

  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
  • Áhugi á málefnum stúdenta og kjaramálum
  • Geta til að starfa sjálfstætt og í teymi
  • Fullnægjandi kunnátta á íslensku og ensku er skilyrði
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og/eða áhuga á sjálfbærni og hagsmunagæslu stúdenta
  • Þekking og reynsla af störfum Stúdentaráðs er mikill kostur
  • Reynsla af viðburðastjórnun er kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur, þó er ekki krafa gerð um að umsækjandi hafi lokið háskólaprófi
  • Færni í tölfræði og reynsla af framkvæmd kannana er kostur

Starfshlutfall er breytilegt eða eftir samkomulagi.

Kynningarbréf ásamt ferilskrá og meðmælum skal senda í tölvupósti á netfang ráðsins: shi@hi.is merkt „Atvinnuumsókn“.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar gildar.

Ritstjóri

Ritstjóri hefur yfirumsjón með útgáfu Akademíunnar sem gefin er út í byrjun skólaársins sem og Stúdentablaðsins sem gefið er út fjórum sinnum á skólaári, tvö blöð á hvoru misseri. Nánari tímasetning fer eftir ákvörðun ritstjóra og skrifstofu Stúdentaráðs. Ritstjóri skipar í ritstjórn og stýrir störfum hennar. Hann sér um dreifingu á Stúdentablaðinu og er ábyrgur fyrir því að birta efni úr því á heimasíðu þess.

Ritstjóri aðstoðar við auglýsingasöfnun en framkvæmdastjóri Stúdentaráðs hefur yfirumsjón yfir henni sem og rekstri blaðsins.

Hæfniskröfur:

  • Þekking og áhugi á málefnum stúdenta
  • Reynsla af fjölmiðla- og útgáfustörfum
  • Reynsla af grafískri hönnun er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Þekking á vefumsjón er kostur
  • Gott vald á íslenskri og enskri tungu
  • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
  • Vilji til að vinna með Stúdentaráðsliðum, starfsmönnum skrifstofu Stúdentaráðs og öðrum hagsmunaaðilum ráðsins
  • Menntun sem nýtist er kostur

Starfshlutfall er breytilegt eða eftir samkomulagi.

Kynningarbréf ásamt ferilskrá og meðmælum skal senda í tölvupósti á netfang ráðsins: shi@hi.is merkt „Atvinnuumsókn“.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru ekki teknar gildar.

Kjörfundur Stúdentaráðs 30. apríl 2026

Kosningar til Stúdentaráðs fóru fram 26. mars sl. og má nálgast niðurstöður kosninga á heimasíðu ráðsins.

Í kjölfar kosninga kýs Stúdentaráð sér fulltrúa til starfa á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs, ásamt því að kjósa í önnur embætti ráðsins á sérstökum kjörfundi. Kjörfundur verður haldinn 30. apríl kl. 17:30 (FRÉTT VERÐUR UPPFÆRÐ MEÐ FUNDARSTAÐ) Fundir Stúdentaráðs eru opnir öllum skv. a-lið 9. gr. laga Stúdentaráðs.

Mögulegt er að gefa kost á sér í embætti forseta, varaforseta, hagsmunafulltrúa og lánasjóðsfulltrúa á skrifstofu Stúdentaráðs. Einnig í fastanefndir og önnur embætti á vegum Stúdentaráðs. Þau sem kjörin eru á kjörfundi taka við störfum á skiptafundi, sbr. 4. gr. laga Stúdentaráðs. Kjörgengir til þessara embætta eru öll þau sem hafa verið skráð til náms við Háskóla Íslands á síðustu þremur árum, á undan sérstökum kjörfundi.

Embætti sem kosið er í á skrifstofu Stúdentaráðs, skv. lögum ráðsins:

  • Forseti Stúdentaráðs
  • Varaforseti Stúdentaráðs
  • Lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs
  • Hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs

Nefndir Stúdentaráðs, skv. lögum ráðsins:

  • Fjórir fulltrúar skulu kjörnir í fjármála- og atvinnulífsnefnd, alþjóðanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, fjölskyldunefnd, félagslífs- og menningarnefnd og lagabreytinganefnd.
  • Tveir fulltrúar eru kjörnir í nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd.
  • Fimm fulltrúar eru kjörnir í jafnréttisnefnd, einn frá hverju fræðasviði, og taka þeir aðilar jafnframt sæti í jafnréttisnefnd hvers sviðs.

Tilnefningar í embætti skal skila til fundarstjóra sem er jafnframt forseti Stúdentaráðs, Arent Orra J. Claessen, fyrir kjörfund á shi@hi.is eða á fundinum sjálfum.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti á shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans.

4. úthlutun Stúdentasjóðs

Búið er að opna fyrir umsóknir í aðra úthlutun Stúdentasjóðs. Hægt er að sækja um styrki með eyðublaðinu hér  til 22:00 þann 22. apríl næstkomandi. Við hvetjum ykkur eindregið til þess að fara eins ítarlega eftir leiðbeiningum í umsóknarskjali og kostur er, en frávik frá reglum getur varðað frávísun umsóknar.
Áður en sótt er um hvetjum við ykkur til að kynna ykkur Stúdentasjóð á heimasíðu Stúdentaráðs og sérstaklega lög hans. Hér er hægt að nálgast helstu upplýsingar um sjóðinn samandregnar.
Spurningum skal vísað til Bríetar Magnúsdóttur, formanns sjóðsstjórnar, á netfangið studentasjodur@hi.is eða til Réttindaskrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
Athugið að Fastir styrkir til félaga verða ekki veittir í þessari úthlutun.

Niðurstöður kosninga 2026

Kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands fór fram þann 26. mars sl. Nýkjörnir fulltrúar taka við á skiptafundi ráðsins í lok maí og hlutu eftirfarandi aðilar kjör í Stúdentaráð:

Aðalfulltrúar

Félagsvísindasvið

  • Andrea Edda Guðlaugsdóttir (Vaka)
  • Vignir Berg Pálsson (Röskva)
  • Jón Gnarr (Vaka)
  • Gabríel Leó Ívarsson (Röskva)
  • Andrea Ösp Hanssen (Vaka)

Heilbrigðisvísindasvið

  • Valtýr Ferrell (Röskva)
  • Guðlaug Embla Hjartardóttir (Vaka)
  • Vera Mist Magnúsdóttir (Röskva)

Hugvísindasvið

  • Ari Hallgrímsson (Röskva)
  • Ásthildur Óskarsdóttir (Röskva)
  • Moses Osabutey (Röskva)

Menntavísindasvið

  • María Fönn Frostadóttir (Röskva)
  • Ragnar Leó Sigurgeirsson (Vaka)
  • Ívar Máni Hrannarsson (Röskva)

Verkfræði- og náttúruvísindasvið

  • Lárus Logi Elentínusson (Röskva)
  • Kristrún Ágústsdóttir (Vaka)
  • Valdís Katla Sölvadóttir (Röskva)

Háskólaráð

Í kosningu til Háskólaráðs hlutu eftirfarandi kjör:

  • Lilja Hrönn Ö. Hrannarsdóttir (Röskva)
  • Sæþór Már Hinriksson (Vaka)

Varamenn:

  • Hjalti Dagur Hjaltason (Röskva)
  • Halldóra Elín Einarsdóttir (Vaka)

Ítarlegri niðurstöður kosninga er að finna hér.

Sögulegur sáttmáli stúdenta Háskóla Íslands við rektor

©Kristinn Ingvarsson
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Arent Orri J. Claessen, forseti Stúdentaráðs HÍ

Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands og rektor Háskóla Íslands hafa undirritað sáttmála sem markar tímamót í samskiptum stúdenta og stjórnenda skólans. Sáttmálinn felur í sér að rektor og Stúdentaráð ætla að berjast saman fyrir bættum aðstæðum stúdenta og þrýsta saman á stjórnvald til þess. Þá felur sáttmálinn í sér að rektor og Stúdentaráð vinni úr 32 tillögum sem lagðar voru fram og samþykktar í Stúdentaráði á yfirstandandi skólaári.

Með samkomulaginu er stigið mikilvægt skref í átt að markvissri samvinnu milli stúdenta og háskólayfirvalda. Sáttmálinn er stór áfangi sem endurspeglar aukið vægi sameinaðrar raddar stúdenta í háskólasamfélaginu. Þetta er jafnframt fordæmisgefandi fyrir áframhaldandi samstarf og þróun háskólans. Sáttmálinn undirstrikar mikilvægi virks samráðs við stúdenta þegar kemur að framþróun Háskólans og setur skýran ramma um hvernig eftirfylgni með sáttmálanum verður háttað. Sáttmálinn inniheldur þær tillögur sem talið er brýnast að rektor beiti sér fyrir, en við í Stúdentaráði fögnum þessum áfanga og vonum að þetta marki nýtt upphaf í hagsmunabaráttu stúdenta, með virku og skýru samstarfi við rektor og háskólann, og að með sáttmálanum hafi verið tekin skóflustunga að frekara samráði.

Hér er sáttmálinn í heild sinni:

Nám og kennsla

  1. Raunverulegt fjarnám – Tryggja skal að fjarnám sé í raun að fullu aðgengilegt án mætingarskyldu
  2. Betra skipulag námsmats og jafnara vinnuálag – Námsmat skal uppfært til að vinnuálagi sé dreift jafnar yfir önnina.
  3. Endurskoðun kennaranáms – Uppfæra á námsefni og auka vægi verklegrar þjálfunar.
  4. Upptökupróf og prófatímabil bætt – Tryggja á rétt stúdents til upptökuprófa/endurtektar og nægt svigrúm í tímabili prófa.
  5. Aukið aðgengi að inntökuprófum – Inntökupróf, svo sem í læknisfræði, skal halda einnig í öðrum landshlutum en á höfuðborgarsvæðinu.
  6. Næring í prófum – Tryggja skal að stúdentar geti neytt næringar í lokaprófum.
  7. Efling Tengslatorgs –  Styrkja þarft tengsl milli náms, rannsókna og atvinnulífs.

Kjaramál

  1. Vaxtalausar raðgreiðslur skrásetningargjalds – Tryggja skal áframhaldandi vaxtalausar greiðsludreifingar skrásetningargjalds.
  2. Endurskoðun skrásetningargjalds – Tryggja skal gagnsæi og sanngirni í uppbyggingu gjaldsins.
  3. Tvírukkanir felldar – Fella skal niður gjöld sem þegar eru innifalin í skrásetningargjaldi.
  4. Rýmri réttur til fæðingarstyrks námsmanna – Tryggja þarf sveigjanleg skilyrði fyrir foreldra í námi.
  5. Aukin fjármögnun stoðþjónustu – Tryggja skal opinbera fjármögnun fyrir þjónustu sem styður við nemendur með sérþarfir.

Samgöngur

  1. Samgöngukort fyrir stúdenta – Innleiða skal afsláttarkerfi fyrir vistvænar samgöngur.
  2. Fyrirsjáanleiki bílastæðagjalda – Setja þarf skýr mörk á verðhækkanir.
  3. Undanþágur frá bílastæðagjöldum – Tryggja skal undanþágur fyrir ákveðna hópa stúdenta.
  4. Sanngjörn gjaldtaka fyrir bílastæði – Tryggja skal að þjónusta bílastæði verði aukin í ljósi gjaldtöku.

Aðstaða og aðbúnaður

  1. Lengri og samræmdur opnunartími bygginga – Samræma skal opnunartíma og lengja aðgang að byggingum.
  2. Aðgengi að rafmagnsinnstungum – Tryggja skal að allar kennslustofur uppfylli grunnþarfir stúdenta.
  3. Bætt aðstaða í Árnagarði – Endurbæta þarf aðstöðu í Árnagarði, búnað og þjónustu.
  4. Bætt prentþjónusta – Tryggja þarf áreiðanlega og aðgengilega prentþjónustu.
  5. Internetaðgengi á stúdentagörðum – Stúdentum skal tryggð netþjónusta á stúdentagörðum.
  6. Betri nýting rýmis í Odda – Nýta skal rýmið í Odda þar sem áður stóð Háma í nemendamiðaða þjónustu.

Stúdentalíf og þjónusta

  1. Ókeypis aðgangur að kennslustofum fyrir nemendafélög – Styðja skal starfsemi nemendafélaga með gjaldfrjálsu aðgengi að stofum.
  2. Sérstök aðstaða fyrir nemendafélög – Tryggja skal fasta aðstöðu til funda og geymslu.
  3. Aukið aðgengi að tíðarvörum – Tryggja þarf aðgengi að gjaldfrjálsum tíðarvörum.
  4. Bætt aðgengi fyrir foreldra í námi – Bæta skal aðstöðu og aðgengi fyrir stúdenta með börn.
  5. Aukin sýnileiki sálfræðiþjónustu – Efla þarf sýnileika stuðningsúrræða.
  6. Viðbragðsáætlun vegna sjálfsvíga á stúdentagörðum – Setja þarf skýrt verklag og styrkja stuðning við aðstandendur.

Jafnrétti og aðgengi að námi

  1. Réttindi alþjóðlegra nema – Tryggja skal að umsóknarferli sé sanngjarnt og skilvirkt.
  2. Árleg inntaka í diplómanám fyrir fatlað fólk – Tryggja þarft jafnt aðgengi að námi.
  3. Réttindi fatlaðs fólks til náms – Alþjóðlegum skuldbindingum um aðgengi að námi skal fylgt í hvívetna.

Fundarboð – 7. fundur Stúdentaráðs – aukafundur

Miðvikudaginn 11. mars 2026 fer fram fundur Stúdentaráðs kl. 17:30 í stofu N-132, Öskju.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta, og öllum áhugasömum er velkomið að mæta.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570 0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Athugið að fundurinn fer fram á íslensku. Hægt er að nálgast fundargögn á ensku með því að hafa samband við skrifstofu á shi@hi.is.

Dagskrá

Fundur settur. 

17:30

Tillaga að sáttmála rektors og stúdenta.

17:30

Flutningsmaður: Stúdentaráðsliðar Vöku 2025-2026

Fundarboð – 6. fundur Stúdentaráðs

Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 fer fram fundur Stúdentaráðs kl. 17:30 í stofu N-132, Öskju.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta, og öllum áhugasömum er velkomið að mæta.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570 0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Dagskrá

Fundur settur. 

17:30

Fundargerð fyrri fundar borin upp til samþykktar.

17:30-17:35

Tillaga að Stúdentaráð lýsi yfir vantrausti á hendur rektor Háskóla Íslands.

Flutningsmaður: Stúdentaráðsliðar Vöku 2025-2026

17:35-17:50

Tillaga að heildarendurskoðun á kostnaðarliðum skrásetningargjaldsins.

Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir

17:50-18:00

Tillaga að afnema gjöld á stúdenta sem eru rukkuð í annarri mynd.

Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir

18:00-18:10

Fundarhlé

18:10-18:25

Tillaga um betri nýtingu á gamla Hámu rýminu í Odda.

Flutningsmaður: Auður Halla Rögnvaldsdóttir, Guðlaug Eva Albertsdóttir

18:25-18:35

Tillaga að Stúdentaráð tryggi aðgengi nemenda að netbeinum á stúdentagörðum.

Flutningsmaður: Guðrún Brynjólfsdóttir

18:35-18:45

Tillaga um víðtækari nýtingu Tengslatorgs í þágu náms og rannsókna

Flutningsmaður: Helga Björg B. Óladóttir

18:45-18:55

Tillaga um að SHÍ beiti sér fyrir fjármögnun stjórnvalda á stoðþjónustu við Háskóla Íslands

Flutningsmaður: Auður Halla Rögnvaldsdóttir, María Björk Stefánsdóttir

18:55-19:05

Tillaga að Stúdentaráð þrýsti á yfirvöld að fara eftir lögbundnum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Flutningsmaður: Sófus Máni Bender

19:05-19:15

Tillaga að bættri aðstöðu í Árnagarði

Flutningsmaður: Viktoría Tea Vökudóttir

19:15-19:25

Tillaga um Vetur Music ehf. 

Flutningsmaður: Ármann Leifsson

19:25-19:35

Kynning á framkvæmdaáætlun fastanefnda SHÍ

19:35-19:45

Bókfærð mál og tilkynningar.

19:45-20:00

Atkvæðagreiðsla fer fram um liði I.-IV. og VI.-XII.

Stúdentaráðsfundur 24. febrúar 2026

Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 fer fram Stúdentaráðsfundur kl. 17:30 í stofu N-132, Öskju.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta, og öllum áhugasömum er velkomið að mæta.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570 0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá verður tilkynnt síðar, frestur til að skila inn tillögum er til og með 17. febrúar 2026.