Stúdentaráðsfundur 23. júní 2026

Þriðjudaginn 23. júní  kl. 17:00 fer fram stúdentaráðsfundur í Auðarsal í Veröld.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þeir verða auglýstir meðal stúdenta og öllum áhugasömum er velkomið að mæta. Ef einhverjar breytingar verða á dagskrá fundarins eða staðsetningu hans má finna þær á vefsíðu Stúdentaráðs, student.is.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs í síma 570-0850 eða með tölvupósti á shi@hi.is ef þið hafið spurningar um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá:

1. Fundur settur 17:00–17:05

2. Fundargerð stúdentaráðsfundar 29. maí 2026 borin upp til samþykktar 17:05–17:10

3. Kynning frá Heiði Önnu Helgadóttur, framkvæmdastjóra FS 17:10–17:25

4. Tilkynningar og mál á döfinni 17:25–17:40

5. Verklagsreglur Stúdentaráðs 17:40–17:55

6. Tillaga að SHÍ birti á heimasíðu sinni upplýsingar um greiðsluleiðir skrásetningargjalda 17:55–18:05

Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði

7. Tillaga að auknu utanumhaldi nýnema á verkfræði- og náttúruvísindasviði 18:05–18:15

Flutningsmaður: Kristrún Ágústsdóttir, stúdentaráðsliði

8. Tillaga að SHÍ beiti sér fyrir vaxtalausum greiðsludreifingum skrásetningargjalda 18:15–18:25

Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði

9. Fundarhlé 18:25–18:35

10. Tillaga að nemendur Háskóla Íslands á Hólum fái rödd innan Stúdentaráðs 18:35–18:45

Flutningsmaður: Andrea Edda Guðlaugsdóttir, oddviti Vöku og stúdentaráðsliði

11. Tillaga um aðgengi að ensku í samskiptum og fundum Stúdentaráðs 18:45–18:55

Flutningsmaður: Moses Osabutey, stúdentaráðsliði

12. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir því að stundatöflur og hlutaprófa skipulag berist á ásættanlegum tíma 18:55–19:05

Flutningsmaður: Jón Gnarr, stúdentaráðsliði

13. Tillaga að kröfugerð Stúdentaráðs til háskólayfirvalda um afstöðu til gjaldtökuheimildar 19:05–19:15

Flutningsmaður: Ari Hallgrímsson, forseti sviðsráðs Hugvísindasviðs og stúdentaráðsliði

14. Tillaga um að auka upptökur á fyrirlestrum á Félagsvísindasviði 19:15–19:25

Flutningsmaður: Andrea Ösp Hanssen, forseti sviðsráðs Félagsvísindasviðs og stúdentaráðsliði

15. Tillaga að Stúdentaráð beiti sér fyrir sérstakri flýtileið í Uglu fyrir foreldra í námi 19:25–19:35

Flutningsmaður: Vignir Berg Pálsson, oddviti Röskvu og stúdentaráðsliði

16. Önnur mál 19:35–19:40

17. Fundi slitið 19:40