Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu verkefnastjóra Októberfest 2025

Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu verkefnastjóra Októberfest 2025.

Verkefnastjóri Októberfest:
Verkefnastjóri Októberfest heldur utan um samskipti við verktaka, umsjón markaðsmálum í samráði við SHÍ og almennt utanumhald um Októberfest af hálfu SHÍ. Samantekt og skýrsla eftir hátíðina. Starfsmaðurinn er ráðinn í hlutastarf á meðan ráðningartímabilinu stendur.

Hæfniskröfur:
Reynsla af viðburðastjórnun, markaðsstörfum, góð samskiptahæfni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.

Umsóknarferli:
Umsóknarfrestur er til 30. júlí 2025. Umsóknir skulu berar á netfangið shi@hi.is. Hverri umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá og upplýsingar um tvo meðmælendur. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.

Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu sjálfbærnifulltrúa fyrir starfsárið 2025-2026

Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu sjálfbærnifulltrúa fyrir starfsárið 2025-2026.

Sjálfbærnifulltrúi:
Sjálfbærnisfulltrúi háskólanema er stöðugildi sem Festa – miðstöð um sjálfbærni fjármagnar með styrk til skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Fulltrúinn vinnur í nánu samstarfi við Festu með því markmiði að efla vitund háskólanema um sjálfbærni og stuðla að sjálfbærari háskólasamfélagi.

Helstu verkefni: 

  • Skipuleggja fræðsluviðburði tengda sjálfbærni.
  • Miðla upplýsingum um sjálfbærnimál innan SHÍ og Háskóla Íslands.
  • Halda utan um yfirlit og framvindu verkefna.
  • Skýrslugerð um stöðu og þróun sjálfbærnismála innan háskólasamfélagsins.

Hæfniskröfur:
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góða skipulagshæfni. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og/eða áhuga á sjálfbærni og hagsmunagæslu stúdenta. Reynsla af viðburðastjórnun er kostur, sem og þekking eða reynsla af störfum innan SHÍ.

Umsóknarferli:
Umsóknarfrestur er til 30. júlí 2025. Umsóknir skulu berar á netfangið shi@hi.is. Hverri umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá og upplýsingar um tvo meðmælendur. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.

Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu alþjóðafulltrúa fyrir starfsárið 2025-2026

Stúdentaráð Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum í stöðu alþjóðafulltrúa fyrir starfsárið 2025-2026.

Alþjóðafulltrúi:
Alþjóðafulltrúi sinnir þjónustu við alþjóðlega nemendur í samstarfi við Alþjóðasvið HÍ og aðstoðar m.a. við skipulagningu viðburða ásamt alþjóðanefnd SHÍ. Alþjóðafulltrúi er einnig fulltrúi stúdenta innnan alþjóðlega háskólanetsins Aurora og starfar með Aurora teymi HÍ.

Hæfniskröfur: Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi samskiptahæfni. Gott vald á íslensku og ensku, þekking og reynsla af alþjóðastarfi og þátttaka í háskólasamfélaginu eru mikilvæg.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi en gert ráð fyrir 50% vinnu að jafnði.

Umsóknarferli:
Umsóknarfrestur er til 23. júlí 2025. Umsóknir skulu berast á netfangið shi@hi.is. Hverri umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá og upplýsingar um tvo meðmælendur. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.

Hægt er að lesa meira um störf Stúdentaráðs hér.

Nýir starfsmenn á skrifstofu SHÍ

Alda María Þórðardóttir, Fannar Gíslason og Sæþór Már Hinriksson hafa verið ráðin inn á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Ráðið var í stöður framkvæmdastjóra, ritstjóra Stúdentablaðsins og kjara- og réttindafulltrúa, en um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarfull hlutverk sem styðja við daglega starfsemi ráðsins og þjónustu við nemendur.

Framkvæmdastjóri á skrifstofu SHÍ

Alda María Þórðardóttir, 24 ára, tekur við starfi framkvæmdastjóra á skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hún er í BS-námi í hagfræði við Háskóla Íslands og hefur aflað sér reynslu af störfum í opinberri stjórnsýslu, meðal annars hjá launadeild Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og við bakvinnslu hjá Tryggingum og ráðgjöf. Hún gegndi hlutverki varafulltrúa í Stúdentaráði og sat í sviðsráði félagsvísindasviðs starfsárið 2024–2025 og hafði þar áður setið í stjórn Ökonomíu sem varaformaður á skólaárinu 2023–2024.

Í starfi framkvæmdastjóra felst umsjón með daglegum rekstri skrifstofunnar, fjármálastjórn, bókhaldi og samningsgerð. Einnig tilheyrir starfinu að halda utan um fundargerðir og tryggja markviss og skilvirk samskipti innan ráðsins og við hagsmunaaðila.

Ritstjóri Stúdentablaðsins

Sæþór Már Hinriksson, 25 ára, hefur hafið störf sem ritstjóri Stúdentablaðsins. Hann stundar BS-nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og lauk áður diplómanámi í viðburðastjórnun frá Háskólanum á Hólum. Hann býr yfir fjölbreyttri reynslu úr fjölmiðlum og ritstjórn, en hann hefur unnið bæði sem ritstjóri og blaðamaður hjá Feyki á Norðurlandi vestra og sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu.

Ritstjóri Stúdentablaðsins stýrir ritstjórnarstarfi og mótar efnisstefnu blaðsins, skipuleggur útgáfuáætlanir og sér um auglýsingasöfnun. Hann leiðir ritstjórnarteymið og ber ábyrgð á ritstjórnarlegri úrvinnslu efnis með það að markmiði að efla blaðið sem vettvang fyrir fjölbreytta og gagnrýna umræðu meðal stúdenta.

Kjara- og réttindafulltrúi við skrifstofu SHÍ

Fannar Gíslason, 26 ára, hefur tekið að sér hlutverk kjara- og réttindafulltrúa á skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hann er með BS-próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands. Fannar hefur komið víða við í stúdentastarfi, meðal annars sem varafulltrúi í Stúdentaráði starfsárið 2024–2025 og sem fulltrúi í sviðsráði verkfræði- og náttúruvísindasviðs.

Kjara- og réttindafulltrúi sinnir ráðgjöf og þjónustu við nemendur varðandi kjör og réttindi þeirra á vinnumarkaði. Starfið er liður í samstarfi Stúdentaráðs og Visku – stéttarfélags og felur jafnframt í sér þátttöku í fræðslu og vitundarvakningu um réttindamál, í nánu samstarfi við skrifstofu Visku.

Skiptafundur stúdentaráðs 30. maí 2025 – Dagskrá

Föstudaginn 30. maí 2025 fer stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar.

Fundardagskrá:

  1. Forseti stúdentaráðs setur fund 17:00-17:05
  2. Fundargerð síðasta fundar stúdentaráðs 25. mars borin upp til samþykktar (atkvæðagreiðsla) 17:05-17:10
  3. Drög að ársreikningi stúdentaráðs 2024-2025 kynnt 17:10-17:25
  4. Ársskýrsla stúdentaráðs kynnt 17:25-17:50
  5. Bókfærð mál

Nýtt stúdentaráð 2025-2026 tekur við 17:50

  1. Forseti Stúdentaráðs setur fund 17:50
  2. Fundargerð kjörfundar borin upp til samþykktar 17:50-17:55
  3. Praktísk atriði til nýrra Stúdentaráðsliða 17:55-18:10
  4. Fundarhlé 18:10-18:20
  5. Tillaga um jafnari stöðu fjarnema utan höfuðborgarsvæðisins (atkvæðagreiðsla)  18:20-18:30
  6. Tillaga um að SHÍ beiti sér fyrir afmörkuðu rými fyrir verklega þjálfun meistaranema í kínískri sálfræði (atkvæðagreiðsla) 18:30-18:40
  7. Tillaga um kennslustofur fyrir nemendafélög (atkvæðagreiðsla) 18:40-18:50
  8. Tillaga um næringu í lokaprófum (atkvæðagreiðsla) 18:50-19:00
  9. Tillaga um starfstengt diplómanám (atkvæðagreiðsla) 19:00-19:10
  10. Önnur mál 19:10-19:20
  11. Fundi slitið.

Stúdentaráðsfundur 30. maí 2025

Föstudaginn 30. maí 2025 fer Stúdentaráðsfundur fram kl. 17:00 í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar.

Samkvæmt 9. gr. laga Stúdentaráðs eru fundir ráðsins opnir öllum stúdentum við Háskóla Íslands. Þá skal auglýsa meðal stúdenta og er áhugasömum velkomið að mæta á fundi ráðsins. Athugið að fundurinn fer fram á íslensku.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti, shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans. Jafnframt er öllum stúdentum velkomið að hafa samband við skrifstofu Stúdentaráðs vakni spurningar um réttindi þeirra.

Fundardagskrá verður tilkynnt síðar, frestur til að skila inn tillögum er til og með 26. maí 2025.

Stúdentaráð auglýsir eftir umsóknum í stjórn Félagsstofnunar stúdenta

Stúdentar eiga þrjá fulltrúa í stjórn Félagsstofnunar stúdenta sem sitja til tveggja ára í senn. Skipað var síðast í stjórn árið 2023 og er því kominn tími á að gera það aftur. Samkvæmt reglugerð fyrir Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands er stjórnin skipuð fimm mönnum til tveggja ára: háskólaráðuneytið skipar einn fulltrúa, háskólaráð skipar einn fulltrúa og Stúdentaráð skipar þrjá fulltrúa.

Hæfniskröfur

  • Áhugi á Stúdentaráði og þekking á málefnum stúdenta
  • Reynsla af hagsmunabaráttu stúdenta er kostur
  • Virk þátttaka í háskólasamfélaginu er kostur
  • Þekking á stjórnsýslu Háskóla Íslands er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Geta til að tjáningar í ræðu og riti á íslensku

 

Ætlast er til þess að umsækjandi stundi ekki nám við Háskóla Íslands á skipunartímanum og beri hag stúdenta og Félagsstofnunar stúdenta fyrir brjósti.

Kynningarbréfi og ferilskrá skal skilað á netfang Stúdentaráðs shi@hi.is. Umsóknarfrestur er til 23:59 þann 20. maí 2025 og verða umsóknir sem berast eftir þann tíma ekki teknar gildar.

Ný forysta Stúdentaráðs kjörin

Í gær, 29. apríl, var hald­inn kjör­fund­ur Stúd­entaráðs Há­skóla Íslands þar sem skrif­stofa næsta starfs­árs var kos­in. Nýtt ráð mun form­lega taka við á skipta­fundi und­ir lok maí.

Vaka, fé­lag lýðræðissinnaðra stúd­enta, bætti við meiri­hluta sinn í Stúd­entaráðskosn­ing­un­um sem fóru fram hinn 2. og 3. apríl sl. Á kjör­fund­in­um í kvöld hlaut Ar­ent Orri J. Claessen því end­ur­kjör sem for­seti Stúd­entaráðs, en í til­kynn­ingu frá Stúd­entaráði er það sagt sjald­gæft að for­seti hljóti end­ur­kjör.

Ar­ent stund­ar nú meist­ara­nám í lög­fræði, en hann var formaður Vöku áður en hann tók við embætti for­seta Stúd­entaráðs.

Á fund­in­um hlaut einnig kjör Sylvía Mart­ins­dótt­ir sem vara­for­seti ráðsins, en Sylvía nem­ur meist­ara­nám í fjár­mál­um. Vikt­or Pét­ur Finns­son hlaut þá kjör sem lána­sjóðsfull­trúi Stúd­entaráðs, en Vikt­or stund­ar nám við viðskipta­fræðideild.

Þá hlaut Val­gerður Lauf­ey Guðmunds­dótt­ir end­ur­kjör sem hags­muna­full­trúi SHÍ, en hún nem­ur einnig meist­ara­nám í lög­fræði.

„Ég er stolt­ur af starf­inu okk­ar síðasta ár og þakk­lát­ur fyr­ir það traust sem okk­ur hef­ur verið sýnt af nýju Stúd­entaráði og hlakka til að vinna með nýrri skrif­stofu. Mig lang­ar að þakka frá­far­andi Stúd­entaráði og skrif­stofu fyr­ir sín störf og heiti því að við mun­um áfram vinna að bætt­um kjör­um stúd­enta,“ seg­ir Ar­ent Orri, for­seti Stúd­entaráðs

Kjörfundur Stúdentaráðs 29. apríl 2025

Kosningar til Stúdentaráðs fóru fram 2. og 3. apríl sl. og má nálgast niðurstöður kosninga á heimasíðu ráðsins.

Í kjölfar kosninga kýs Stúdentaráð sér fulltrúa til starfa á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs, ásamt því að kjósa í önnur embætti ráðsins á sérstökum kjörfundi. Kjörfundur verður haldinn 29. apríl kl. 17:00 í N-132. Fundir Stúdentaráðs eru opnir öllum skv. a-lið 9. gr. laga Stúdentaráðs.

Mögulegt er að gefa kost á sér í embætti forseta, varaforseta, hagsmunafulltrúa og lánasjóðsfulltrúa á skrifstofu Stúdentaráðs. Einnig í fastanefndir og önnur embætti á vegum Stúdentaráðs. Þau sem kjörin eru á kjörfundi taka við störfum á skiptafundi, sbr. 4. gr. laga Stúdentaráðs. Kjörgengir til þessara embætta eru öll þau sem hafa verið skráð til náms við Háskóla Íslands á síðustu þremur árum, á undan sérstökum kjörfundi.

Embætti sem kosið er í á skrifstofu Stúdentaráðs, skv. lögum ráðsins:

  • Forseti Stúdentaráðs
  • Varaforseti Stúdentaráðs
  • Lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs
  • Hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs

Nefndir Stúdentaráðs, skv. lögum ráðsins:

  • Fjórir fulltrúar skulu kjörnir í fjármála- og atvinnulífsnefnd, alþjóðanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, fjölskyldunefnd, félagslífs- og menningarnefnd og lagabreytinganefnd.
  • Tveir fulltrúar eru kjörnir í nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd.
  • Fimm fulltrúar eru kjörnir í jafnréttisnefnd, einn frá hverju fræðasviði, og taka þeir aðilar jafnframt sæti í jafnréttisnefnd hvers sviðs.

Á kjörfundi hafa einungis nýkjörnir fulltrúar Stúdentaráðs atkvæðisrétt. Gefi fleiri kost á sér en kosið er um ræður hlutfallskosning. Séu fleiri en einn í framboði í tiltekinni kosningu, hlýtur sá einstaklingur sem fær flest atkvæði embættið, svo sá sem þar eftir kemur og koll af kolli.

Tilnefningar í embætti skal skila til fundarstjóra sem er jafnframt forseti Stúdentaráðs, Arents Orra J. Claessen, fyrir kjörfund með tölvupósti á netfangið shi@hi.is eða á fundinum sjálfum.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Stúdentaráðs, í síma 570-0850 eða í tölvupósti á shi@hi.is, ef spurningar vakna um fundinn eða dagskrá hans.

Fundardagskrá

  1. Fundur settur
  2. Kjör forseta Stúdentaráðs 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  3. Kjör varaforseta Stúdentaráðs 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  4. Kjör hagsmunafulltrúa Stúdentaráðs 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  5. Kjör lánasjóðsfulltrúa Stúdentaráðs 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  6. Tilnefningar fylkinga í sviðsráð 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  7. Tilnefningar fylkinga í nefndir Stúdentaráðs 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  8. Kjör Aurora fulltrúa Stúdentaráðs 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  9. Kjör varafulltrúa í Stúdentaráð 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  10. Tilnefningar fylkinga til Háskólaþings 2025-2026 (atkvæðagreiðsla)
  11. Önnur mál

Opnunartími bygginga yfir páska

Byggingar Háskóla Íslands verða lokaðar frá fimmtudeginum 17. apríl til og með mánudagsins 21. apríl vegna páskafrís líkt og kemur fram á heimasíðu háskólans. SHÍ vill ítreka að eftirfarandi byggingar eru aðgengilegar yfir helgina með stúdentakorti: Askja, Háskólatorg, Gimli, Læknagarður, Lögberg, Oddi, Stakkahlíð, og VR-II.

Gleðilega páska!